Beint í efni
Verslun/Lausasölulyf/
Corsodyl 2mg/ml 300ml

Corsodyl 2mg/ml 300ml

081501

Product information


Attachments

Short description

Til sótthreinsunar fyrir og eftir munn- og tannaðgerðir.

Auka upplýsingar

Description

Tímabundin meðferð við munnbólgu af völdum gervitanna

Tímabundin meðferð til varnar bakteríum og tannsteini vegna tímabundinna sjúkdóma, slyss, mikillar tannsteinsmyndunar, tannholdsbólgu og tannslíðursbólgu

Lausninni er einnig ávísað fyrir einstaklinga með spangir vegna tannréttinga. Ekki skal nota Corsodyl fyrir börn yngri en 12 ára nema læknir eða tannlæknir ráðleggi það. Skola skal munninn 2svar á dag með u.þ.b. 10 ml af lausninni í minnst 1 mínútu

Lausninni er þá spýtt

Við munnaðgerðir er Corsodyl notað í 5 daga fyrir aðgerð og 5 daga eftir aðgerð

Við tannaðgerðir er Corsodyl notað í 1-3 vikur eftir aðgerð. Við tannholdsbólgu er mælt með meðhöndlun í u.þ.b. einn mánuð. Corsodyl er notað eftir tannburstun með tannkremi en ekki fyrir

Skola skal munninn vandlega eftir tannburstun, annars geta leifar sápuefna í tannkreminu, t.d. natríumlaurýlsúlfat verkað gegn áhrifum klórhexidínsins

Lyfið getur valdið mislitun tanna en hægt er að koma í veg fyrir þetta með því að nota Corsodyl t.d. á kvöldin og venjulegt tannkrem á morgnana. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins

Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir

Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.