Beint í efni
Mínar Síður
Loka
Category iconLausasölulyf
Category iconHárvörur
Category iconForeldrar og börn
Category iconStoðvörur
Category iconVitamin og bætiefni
Category iconAðhlynning
Category iconMunnheilsa
Category iconHúðvara
Category iconSnyrtivara
Category iconKvef, Hálsbólga og Hósti
Category iconKynheilsa
Category iconAugnheilsa
Category iconSjálfspróf og mælar
Category iconSvefn og Slökun
Category iconFerðalög
Category iconHreinlæti
Category iconLífstíll
Category iconMatvara
Category iconSnyrtivörur
Category iconHúðvörur

Verslun/Kynheilsa/
Ovestin 1mg/g 15g

Ovestin 1mg/g 15g

567400

Product information


Attachments

Short description

Ovestin 15 g 1mg/g  legkrem sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast hormónauppbótarlyf í leggöng. Það inniheldur kvenhormónið estríól (estrógen), sem myndast í líkamanum. Ovestin er ætlað til notkunar hjá konum eftir tíðahvörf, þegar að minnsta kosti 12 mánuðir eru liðnir frá síðustu eðlilegu tíðablæðingum. 

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.


Lagerstaða

Lagerstaða
Glæsibær: Til á lager
Vesturlandsvegur: Fá eintök
Urðarhvarf: Til á lager
Suðurfell: Fá eintök
Hæðasmári (Vefverslun): Til á lager
Reykjanes: Fá eintök
Selfoss: Til á lager

Description

Það er notað til að lina einkenni frá leggöngum vegna tíðahvarfa, svo sem þurrk og ertingu. Læknisfræðilega kallast þetta “rýrnun slímhúðar í leggöngum”. Þau koma til vegna þess að magn estrógens í líkamanum minnkar. Eðlilegt er að þetta gerist eftir tíðahvörf. Estrógenmyndun minnkar skyndilega ef eggjastokkar eru fjarlægðir með skurðaðgerð (brottnám eggjastokka) fyrir tíðahvörf. Ovestin virkar með því að koma í stað estrógens sem myndast eðlilega í eggjastokkum kvenna. Því er komið fyrir í leggöngunum, svo hormónið losnar úr lyfinu þar sem þess er þörf. Þetta getur linað óþægindi í leggöngum.
Estrógenskortur á breytingaskeiðinu getur valdið þynningu og þurrki í leggangavegg. Þetta getur leitt til sársauka við samfarir og hugsanlega kláða og sýkinga. Estrógenskortur getur einnig valdið einkennum eins og þvagleka og endurtekinni blöðrubólgu.
Nokkrir dagar og jafnvel vikur geta liðið áður en vart verður við áhrif af lyfinu.