Sag Natura Kollagen 90hylki
10009356
Product information
Short description
KeyNatura Kollagen 90 hylki er unnið úr þorskroði. Þorskurinn er veiddur í Norður-Atlantshafi. Kollagen er að finna í öllum liðum, vöðvum og beinum og er jafnframt algengasta prótein í líkama fólks. Kollagen er einnig að finna í húð, hár og nöglum.
Lagerstaða
Description
Eftir 25 ára aldur fer náttúruleg kollagen framleiðsla í líkamanum að minnka. Rannsóknir benda til þess að inntaka kollgens geti minnkað liðverki, ásamt því að hafa góð áhrif á húð, hár og neglur. C-vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi húðar.
Vísindaleg formúla sem inniheldur hágæða kollagen úr íslenskum þorski, ásamt c vítamíni sem styður við nýtingu kollagens í líkamanum. Í formúlunni má einnig finna hyaluronic sýru sem er mikilvæg líkamanum til að viðhalda raka í húð og liðum en sá náttúrlegi eiginleiki líkamans minnkar með aldrinum.
Kollagen er eitt helsta byggingarefni líkamans og sér til þess að vefir líkamans haldist sterkir og viðheldur teygjanleika vegna einstakra amínósýrusamsetningar. Framleiðsla á kollageni minnkar aftur á móti með aldrinum. Þegar kollagen framleiðslan minnkar byrja vefir líkamans að veikjast og það fer að bera á ýmsum öldrunareinkennum. Áhrifanna gætir í húðinni því með minni kollagen framleiðslu byrja að myndast hrukkur í húðinni og teygjanleiki hennar minnkar, því er talið æskilegt að fólk taki inn kollagen eftir 28 ára aldur.
Þessi hágæða blanda er byggð á íslensku hugviti og er afrakstur áralangra rannsókna- og þróunarvinnu á SeaCol* og Iceprotein sem er unnið úr íslenskum þorski.
Innihald: Vatnsrofið fisk kollagen úr Norður-Atlantshafs þorski (Gadus morhua), askorbín sýra (C-vítamín), hýalúrónsýra, magnesíum sterat, hylki úr jurtabeðmi (HPMC).
Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 3 hylki á dag.
SagaNatura er íslenskt líftæknifyrirtæki sem þróar heilsuvörur úr lífvirkum efnum úr náttúrunni. Vöruþróunarteymi SagaNatura leggur mikinn metnað í að þróa hágæðavörur sem eru studdar af rannsóknum.
Einn pakki af Kollageni inniheldur 90 hylki, sem endist í 1 mánuð.
Ekki neyta meira en sem nemur ráðlögðum daglegum neysluskammti. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið vöruna á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.
Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávalt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.

