Bio-Kult Candéa 60 hylki
10008772
Product information
Short description
Bio Kult Candéa er sérhönnuð góðgerlablanda sem hefur það að markmiði að styðja við heilbrigða þarmaflóru og heilbrigða flóru á viðkvæmum svæðum. Bio Kult Candéa inniheldur 7 tegundir frostþurrkaðra og sýruþolinna gerlastofna ásamt hvítlauk og greipaldinþykkni (GSE) sem m.a. hefur verið þekkt fyrir að hjálpa til við að drepa niður candida albicans gersveppinn.
Bio-Kult góðgerla má taka á sama tíma og sýklalyf en mælt er með að Bio-Kult sé tekið 1-2 klst. eftir inntöku sýklalyfjanna fyrir bestan árangur. Mælt er með að taka Bio-Kult í að minnsta kosti tvær vikur eftir að notkun sýklalyfja er hætt.
Notkun: Fyrir fullorðna eru 2 hylki með mat. Börn yfir 12 ára er 1 hylki á dag með mat.
Lagerstaða
Description
Candida albicans er svokallaður tækifærissveppur og er hluti af eðlilegri þarmaflóru sem nærist á sætindum og sykruðu fæði. Hann er í litlu mæli í munni og þörmum en ef hann fær að vaxa óhindrað getur hann valdið fjölda óæskilegra einkenna. Mikill ofvöxtur á candida albicans getur valdið því að þarmaveggirnir veikjast og verða gegndræpir (leaky gut/gegndræpur ristill) en við það þá geta óæskileg efni t.d fæðuagnir, bakteríur og önnur óæskileg efni náð að leka úr þörmunum út í blóðrásina og valdið ýmsum óþægindum.
- Hentar barnshafandi konum og mjólkandi mæðrum.
- Inniheldur soya og mjólk í mjög litlu magni.
- Geymist við stofuhita á þurrum stað.
- Leitið ráðlegginga hjá lækni áður en fæðubótarefnið er gefið börnum undir 12 ára aldri
Lyfjaval mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
