Beint í efni
Mínar Síður
Loka
Category iconLausasölulyf
Category iconHárvörur
Category iconForeldrar og börn
Category iconStoðvörur
Category iconVitamin og bætiefni
Category iconAðhlynning
Category iconMunnheilsa
Category iconHúðvara
Category iconSnyrtivara
Category iconKvef, Hálsbólga og Hósti
Category iconKynheilsa
Category iconAugnheilsa
Category iconSjálfspróf og mælar
Category iconSvefn og Slökun
Category iconFerðalög
Category iconHreinlæti
Category iconLífstíll
Category iconMatvara
Category iconSnyrtivörur
Category iconHúðvörur

Verslun/Vitamin og bætiefni/Bætiefni/
Pró-Gastró DDS+ 100stk

Pró-Gastró DDS+ 100stk

10009330

Product information


Short description

Prógastró DDS+ góðgerlar eru góð vörn gegn hinum ýmsu meltingarkvillum


Lagerstaða

Lagerstaða
Glæsibær: Uppselt
Vesturlandsvegur: Uppselt
Urðarhvarf: Uppselt
Suðurfell: Uppselt
Hæðasmári (Vefverslun): Uppselt
Reykjanes: Uppselt
Selfoss: Uppselt

Description

Meginþorri heilbrigðra einstaklinga hafa svipaða þarmaflóru en hún þróast og dafnar alla ævi. Þarmaflóran ver okkur gegn óæskilegum örverum og hefur margskonar áhrif á heila- og taugakerfið. Öflug og vel samsett þarmaflóra er grunnurinn að sterku ónæmiskerfi og oftar en ekki er hægt að rekja ýmsa líkamlega sem og andlega kvilla til lélegrar þarmaflóru.

Ástæður þess að þarmaflóran okkar raskast má meðal annars rekja til inntöku sýklalyfja, mikils álags og streitu, neyslu á sykri og unnum matvörum, mikilli kaffidrykkju og fleiri lífsstílstengdra þátta.

PróGastró DDS+ góðgerlarnir innihalda 4 tegundir stofna, L acidophilus DDS-1,B longum, B bifidum og B lactis. Gerlarnir hafa það að markmiði að bæta þarmaflóruna og koma í veg fyrir meltingaróþægindi, svo sem ónot, uppþembu, og erfiðar hægðir

L.acidophilus DDS®-1 mikilvægastur

PróGastró mjólkursýrugerlarnir eru afar öflugir en þeir innihalda 4 tegundir gall- og sýruþolinna gerlastofna. Einn þessara stofna er gerillinn L. acidophilus DDS®-1 en þetta er nafn á áhrifaríkum gerlastofni þar sem „DDS®-1 viðbótin“ er afar mikilvæg. Gerillinn hefur lengi verið þekktur fyrir heilsueflandi eiginleika sína en hann þolir hátt sýrustig í maganum ásamt því að margfalda sig í smáþörmunum þar sem hans er mest þörf. PróGastró DDS+ mjólkursýrugerlarnir hafa það að markmiði að byggja upp þarmaflóruna og bæta meltingu og hafa reynst afar vel fyrir þá sem þjást af hinum ýmsu kvillum, svo sem magaónótum.

Í hverju hylki af PróGastró DDS+ mjólkursýrugerlunum eru 15 milljarðar af gall- og sýruþolnum gerlastofnum sem hafa jákvæð áhrif á þarmaflóruna. PróGastró DDs+ er afar áhrifarík vara og aðlagast líkamsstarfseminni vel ásamt því að vera talin gagnleg fyrir alla aldurshópa.