Pharmaceris T- Comedo Acne krem, bólur og fílapenslar
10001848
Product information
Short description
Pharmaceris T-Comedo Acne krem sem vinnur gegn bólum og fílapenslun og losar húðina við stíflur. Hjálpar einnig til að vinna gegn brúnum blettum.
Kremið má bera á bæði kvölds og morgna. Berið kremið á hreina húð en forðist augnsvæðið. Hentar vel undir farða. Kremið slípar húðina mjúklega og því gæti orðið létt flögnun.
Lagerstaða
Description
Pharmaceris T húðvörulína – Fyrir feita og blandaða húð sem fær bólur (acne). Þessi lína er sérstaklega hönnuð til að meðhöndla húð sem fær bólur. Megin innihaldsefni hennar hjálpa til við að koma jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar. Vörurnar eru bakteríudrepandi og hjálpa til við að halda bólum í skefjum. Vörurnar eru ofnæmisprófaðar og erta ekki. Með því að hreinsa húðina daglega og bera á hana krem við hæfi er hægt að hjálpa húðinni að ná jafnvægi og minnka bólur.
Virkni innihaldsefna: Shikimic acid hefur öflugan bakteríudrepandi eiginleika um leið og það vinnur gegn bólum og stíflum í húð. Það er einnig rakagefandi og vinnur gegn litabreytingum í húð. Azeloglycine er mildara en hreint azelaic acid og veitir betri raka . Minnkar fituframleiðslu þannig að húðin glansar minna. gerir húðina mýkri og bætir stinnleika og teygjanleika hennar. Spornar gegn litabreytingum í húð. Niacinamide vinnur gegn bólum og sýkingu í húð. Það er bólguhamlandi og hjálpar til við að koma jafnvægi á fituframleiðslu. Það vinnur gegn öldrun húðarinnar og lýsir brúna bletti.

