Mometason Apofri 50mcg/sk 140skammtar
390439
Product information
Attachments
Short description
Mometason Apofri nefúði er til meðferðar við ofnæmiskvefi og stöðugri nefslímubólgu hjá fullorðnum og börnum, 3 ára og eldri. Ofnæmisviðbrögð geta komið fram þegar andað er að sér frjókornum eða myglu og sveppum. Stöðug nefslímubólga vegna ofnæmis fyrir rykmaurum, dýrahárum, fjöðrum eða ákveðnum fæðutegundum. Dregur úr þroti og erting í nefi og minnkar þannig hnerra, kláða og nefstíflu eða nefrennsli. Mometason Apofri nefúði er líka ætlaður til meðferða á sepum í nefi hjá fullorðnum.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Lagerstaða
Description
Skammtur fyrir fullorðna, 18 ára og eldri, er 2 úðar í hvora nös einu sinni á dag. Þegar stjórn hefur náðst á einkennum má minnka skammtinn í einn úða í hvora nös einu sinni á dag. Ekki má nota stærri skammt.
Hjá sumum sjúklingum byrjar Mometason Apofri að draga úr einkennum 12 klst. eftir fyrsta skammt, en það geta liðið allt að 2 dagar þar til fullur árangur af meðferðinni kemur fram.
Ef þú er með mikið ofnæmiskvef gætir þú þurft að byrja að nota Mometason Apofri nokkrum dögum áður en frjókornatímabilið hefst.
Þú skalt hafa samband við lækni ef þér er ekki farið að líða betur eða líður verr eftir 14 daga.
Ekki skal nota Mometason Apofri lengur en í þrjá mánuði samfellt án þess að hafa samráð við lækni.
