Parapró 700mg 20stk
471122
Product information
Attachments
Short description
Parapró 20stk 700mg töflur tilheyrir flokki lyfja sem kölluð eru bólgueyðandi gigtarlyf. Þau draga úr verkjum, bólgum og hita.
Parasetamól er verkjalyf sem hefur annan verkunarhátt en íbúprófen og er verkjastillandi og hitalækkandi. Parapró er notað tímabundið við vægum eða meðalmiklum verkjum sem tengjast mígreni, höfuðverk, bakverk, tíðaverk, tannverk, lið- og vöðvaverkjum, vægri liðagigt og kvef- og flensueinkennum, særindum í hálsi og hita.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Lagerstaða
Description
Til inntöku og aðeins til skammtímanotkunar.
Nota skal minnsta virka skammt í eins stuttan tíma og nauðsynlegt er til að lina einkenni. Ekki skal taka Parapró lengur en í 3 daga. Ef einkenni versna skal hafa samband við lækni. Leitaðu tafarlaust ráða hjá lækni ef þú ert með sýkingu ef einkenni sýkingarinnar (svo sem sótthiti og verkur) eru þrálát eða versna (sjá kafla 2).
Takið 1 töflu allt að þrisvar á dag með vatni og mat. Látið líða minnst 6 klukkustundir á milli skammta.
Ef ein tafla nægir ekki til að slá á einkenni, má taka að hámarki 2 töflur allt að þrisvar á dag.
Ekki skal taka fleiri en 6 töflur (sem samsvarar 3.000 mg af parasetamóli, 1.200 mg af íbúprófeni) á sólarhring.
Notkun handa börnum
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
![Parapró 20stk 700mg [filmhtfl]](https://lyfjaval.s3.eu-central-1.amazonaws.com/2024/04/471122.jpg)