Vermox 20mg/ml 30ml
595134
Product information
Attachments
Short description
Vermox mixtúra er notað til meðhöndlunar við njálg hjá fullorðnum og börnum frá 2 ára aldri. Vermox hindrar efnaskipti orma, sem veldur því að ormarnir drepast. Vermox hamlar einnig þroska ormaeggja. Mælt er með því að allir innan sömu fjölskyldu fái meðferð á sama tíma til að koma í veg fyrir útbreiðslu smitsins.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Lagerstaða
Description
Alltaf skal nota lyfið nákvæmlega eins og lýst er í þessum fylgiseðli eða eins og læknirinn eða lyfjafræðingur hefur mælt fyrir um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita upplýsinga hjá
lækninum eða lyfjafræðingi. Íhugaðu að nota Vermox mixtúru ef þú eða barnið getið ekki gleypt töfluna.
Ráðlagður skammtur handa fullorðnum og börnum frá 2 ára aldri:
Við njálg: 1 tafla eða 5 ml af mixtúru sem stakur skammtur. Endurtakið meðferðina eftir u.þ.b. 2 vikur. Það kemur í veg fyrir að sýking taki sig upp að nýju og er nauðsynlegt til þess að losna alveg við njálginn. Fyrri meðferðin drepur njálginn en ekki eggin. Þegar eggin klekjast út getur sýkingin 3 tekið sig upp að nýju ef meðferðin er ekki endurtekin. Leitið ráða hjá lækninum ef einkenni hverfa ekki innan fárra daga eftir endurtekna meðferð.
![Vermox 30ml 20mg/ml [mixtúra]](https://lyfjaval.s3.eu-central-1.amazonaws.com/2023/01/595134.jpg)