Laxoberal 7.5mg/ml 30ml
427765
Product information
Attachments
Short description
Laxoberal er hægðalyf. Það verkar með því að örva þarmahreyfingar og eykur upptöku vatns og ákveðinna salta í ristlinum. Þetta örvar þarmatæmingu, styttir ferðatímann og gerir hægðir mýkri. Laxoberal er notað við hægðatregðu sem varað hefur í lengri eða skemmri tíma.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Lagerstaða
Description
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan fárra daga.
Droparnir eru venjulega teknir inn að kvöldi eftir þörfum. Gera má ráð fyrir að lyfið virki 6-12 klukkustundum eftir inntöku.
Ráðlagður skammtur : Fullorðnir: Ráðlagt er að byrja á 10 dropum.
Skammtinn má auka í 20 dropa til að koma á reglulegum hægðum. Ekki skal nota stærri skammta.
Til að fá dropa úr flöskunni á að halda flöskunni þannig að dropaskammtarinn snúi niður. Ef lausnin byrjar ekki strax að dropa skaltu banka varlega á botninn á flöskunni til að koma fyrsta dropanum af stað.
Börn eiga ekki að nota Laxoberal nema í samráði við lækninn.
