Livostin 0.5mg/ml 4ml
431154
Product information
Attachments
Short description
Livostin augndropar er andhistamín sem notað er við ofnæmisóþægindum eins og augnroða, þrota í augum, rennsli úr augum og augnkláða. Livostin augndropar eru notaðir við ofnæmi af völdum frjókorna eða annarra loftborinna ofnæmisvalda frá t.d. gæludýrum, ryki eða myglu/sveppagróum. Livostin vinnur gegn ofnæmi með því að hindra áhrif histamíns. Það er histamín sem veldur roða, þrota, kláða og rennsli úr augum. Verkun Livostin hefst innan 15 mínútna.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Lagerstaða
Description
Lyfið er fáanlegt án lyfseðils til meðferðar við ofnæmi og venjulegur skammtur fyrir fullorðna og börn með vægt til í meðallagi mikið frjókornaofnæmi er 1 dropi í hvort auga 2 sinnum á dag. Ef þörf krefur má gefa skammtinn allt að 4 sinnum á dag. Halda á meðferðinni áfram svo lengi sem ofnæmisóþægindi eru í auganu. Hafðu samband við lækni ef verkun lyfsins kemur ekki fram innan nokkurra daga eða ef þú þarft að nota augndropana lengur en samfleytt í 1 mánuð í fyrsta skiptið sem þú notar Livostin augndropa.
Eftir að pakkning lyfsins hefur verið rofin má ekki nota innihaldið lengur en í einn mánuð.
Notkunarleiðbeiningar
1. Hristið dropaglasið vel og skrúfið tappann af.
Fjarlægið hringinn af dropaglasinu þegar það er opnað í fyrsta sinn.
2. Hallið höfðinu aftur.
3. Þrýstið á botn dropaglassins og dreypið einum dropa varlega í augnkrókinn. Blikkið auganu um
leið og neðra augnlokið er dregið niður, til að dropinn dreifist yfir allt augað.
4. Með sama hætti skal gefa lyfið í hitt augað.
Til að koma í veg fyrir mengun augndropanna á að forðast að dropaglasið snerti augun.
