Betolvex 1mg 100stk
407043
Product information
Attachments
Short description
B12-vítamín er lífsnauðsynlegt vítamín sem er nauðsynlegt t.d. fyrir eðlilega frumuskiptingu, eðlilega blóðmyndun og eðlilega starfsemi tauga.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Lagerstaða
Description
Lausasölulyf sem inniheldur B12 - vítamín
Skortur á B12-vítamíni getur t.d. valdið blóðskortssjúkdómnum blóðflagnafári (pernicious anemia) og/eða einkennum frá taugakerfi, t.d. skyntruflunum
Yfirleitt fæst B12-vítamín í litlu magni með fæðu. Það frásogast í líkamanum fyrir tilstilli t.d. magasýru og sérstaks próteins (innri þáttar) sem myndast í slímhúð magans
Ef inntaka hreins B12-vítamíns er aukin 100 falt (=1 tafla af Betolvex) frásogast nægilegt magn í líkamanum þrátt fyrir starfstruflanir í meltingarvegi. Betolvex er gefið við B12-vítamínskorti og þegar hætta er á slíkum skorti
Skortur á B12-vítamíni getur t.d. komið fram ef vítamínið getur ekki frásogast eðlilega í líkamanum úr fæðu. Þetta getur verið vegna meltingarsjúkdóms, en getur einnig verið vegna aðgerðar við magasári eða annarra aðgerða í þörmum
Skortur á B12-vítamíni getur einnig komið fram vegna langtímameðferðar við bólgum í meltingarvegi.
