Vefapótek Lyfjavals
Apótekið á þínum forsendum
Með vefapóteki Lyfjavals færð þú einfaldan og öruggan aðgang að apóteki Lyfjavals, hvenær sem þér hentar. Þegar þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum sérðu lyfseðlana þína á einum stað, auk þess sem þú færð skýra yfirsýn yfir verð, greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands og afslætti.
Þegar þú skráir þig inn getur þú:
- Pantað lyf og aðrar vörur á einfaldan hátt
- Valið um að sækja vörur í apótek eða fá þær sendar heim
- Skoðað greiðsluþrep þitt hjá Sjúkratryggingum Íslands
- Fengið yfirlit yfir lyfseðla í gáttinni og kostnað við lyfin
- Séð verðmun á samheitalyfjum
- Skoðað rafræna lyfseðla barna upp að 16 ára aldri
