Vectavir 10mg/g 2g
452215
Product information
Attachments
Short description
Vectavir krem er notað til meðhöndlunar á áblæstri af völdum Herpes veiru. Vectavir er hægt nota áður en blöðrur myndast og eftir að blöðrur myndast. Með notkun á kreminu grær áblásturinn hraðar og sársaukatímabilið styttist.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Lagerstaða
Description
Hvernig er Vectavir notað?
Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Borið á með um 2 klukkustunda millibili yfir daginn. Meðferð á að standa yfir í 4 sólarhringa. Hefja skal meðferð eins fljótt og hægt er eftir að fyrstu einkenni sýkingar koma fram. Þótt meðferð hefjist þegar sjúkdómurinn er lengra á veg kominn (þegar blöðrur hafa myndast) stuðlar lyfið einnig að því að sár grói, sársauki minnki og veirusýkingin standi skemur yfir hjá sjúklingum.
Börn: Engin reynsla er af meðferð hjá börnum yngri en 12 ára.
Meðganga og brjóstagjöf
Þar sem ekki hefur verið sýnt fram á öryggi pencíklóvírs á meðgöngu skulu þungaðar konur og konur með barn á brjósti einungis nota Vectavir krem samkvæmt læknisráði.
![Vectavir 2g 10mg/g [krem]](https://lyfjaval.s3.eu-central-1.amazonaws.com/2024/04/452215.jpg)