Septabene citron og honning 16stk
419733
Product information
Attachments
Short description
Septabene citron og honning 16 stk munnsogstafla er notað til meðferðar á einkennum hálsbólgu sem tengist vægum sýkningum í munni og hálsi. Lyfið er bólgueyðandi, verkjastillandi og sýkladrepandi lyf til staðbundinnar notkunar í munnhol. Sótthreinsar munn og háls og dregur úr bólgueinkennum í hálsi, svo sem verk, roða, þrota, hita og skertri virkni.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Lagerstaða
Description
Fullorðnir: Ráðlagður skammtur er 3−4 munnsogstöflur á dag. Leysa á eina munnsogstöflu hægt upp í munninum á 3 til 6 klukkustunda fresti.
Unglingar eldri en 12 ára: Ráðlagður skammtur er 3−4 munnsogstöflur á dag. Leysa á eina munnsogstöflu hægt upp í munninum á 3 til 6 klukkustunda fresti.
Börn á aldrinum 6 til 12 ára: Ráðlagður skammtur er 3 munnsogstöflur á dag. Leysa á eina munnsogstöflu hægt upp í munninum á 3 til 6 klukkustunda fresti.
Fullorðinn þarf að fylgjast með notkun munnsogstaflna hjá börnum á aldrinum 6 til 12 ára.
Börn yngri en 6 ára mega ekki nota Septabene citron og honning.
