Florealis Smaronia Gel Fyrir Leggöng
10000755
Product information
Short description
Florealis Smaronia gel fyrir leggöng. Einstök meðferð við leggangaþurrki. Þykkir slímhúð legganga, dregur úr óþægindum við samfarir og öðrum einkennum sem geta tengst tíðarhvörfum. Smaronia hefur viðurkennda virkni og er ætlað til meðferðar á leggangaþurrki, slímhúðarrýrnun og öðrum óþægindum í leggöngum (s.s kláða, sviða, sársauka við samfarir). Smaronia róar, smyr, nærir og veitir raka sem saman stuðla að því að bæta og viðhalda heilleika slímhúðar.
Lagerstaða
Description
Smaronia varðveitir náttúrulegan raka legslímhúðar með því að mynda varnarhimu yfir viðkomandi svæði. Himnan verndar svæðið frá ertandi efnum og sýklum úr umhverfinu, en tíðni sýkinga í leggöngum eykst um og eftir tíðahvörf.
Rauðsmári (red clover) stuðlar að náttúrulegu hormónajafnvægi í leggöngum, ásamt þykknun og auknum teygjanleika slímhúðar og róar, smyr og nærir slímhúðina.
Hýalúrónsýra er rakagjafi ásamt því að styðja við myndun varnarhjúpsins.
SIAB er einstakt efnasamband sem myndar varnarhjúp sem viðheldur raka í slímhúð legganga, veitir vörn gegn ertandi efnum og örverum og myndar þar með kjöraðstæður fyrir slímhúðina að endurnýja sig.
Gagnlegar upplýsingar
Notist í leggöng, helst útafliggjandi fyrir svefn. Þvo skal hendur fyrir notkun. Endi túpusprotans er snúinn af. Allur túpusprotinn er settur inn í leggöng þar sem túpan er tæmd alveg og henni haldið samanklemmdri á meðan sprotinn er dreginn út. Ein túpa er notuð daglega í minnst 7 daga, í alvarlegri tilfellum í allt að 21 dag. Til að viðhalda verkuninni er ráðlagt að nota Smaronia þriðja hvern dag eftir það eða eftir þörfum. Sumar konur upplifa vægan sviða í upphafi meðferðar sem hverfur þegar líður á meðferðina. Engar þekktar milliverkanir eru við lyf.
