Esomeprazol Actavis 20mg 28stk
568745
Product information
Attachments
Short description
Esomeprazol Actavis 28stk 20mg. Virka efnið esómeprazól dregur úr myndun á magasýru. Það er notað við bólgu í vélinda af völdum bakflæðis magasýru og líka við einkennum sjúkdóma af völdum bakflæðis frá maga í vélinda. Lyfið þykir henta í langtímameðferð til að koma í veg fyrir að bólga í vélinda, sem hefur verið læknuð, taki sig upp að nýju.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Lagerstaða
Description
Auk þess er esómeprazól notað ásamt sýklalyfjum við sýkingu af völdum bakteríunnar Helicobacter pylori. Ef ekki tekst að uppræta Helicobacter pylori-sýkingu veldur hún endurteknum maga- og skeifugarnarsárum, en til þess að vinna á bakteríunni þarf bæði sýklalyf og lyf sem draga úr magasýruframleiðslu. Esómeprazól hindrar seyti magasýru úr sýrumyndandi frumum. Með því dregur það úr framleiðslu magasýrunnar.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif á losun magasýru koma fram innan 1 klst.
Verkunartími:
Um 24 klst. eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum upprunalegum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Einkenni sjúkdómsins geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Þó er æskilegt að sjúklingar í langtímameðferð séu undir reglulegu eftirliti hjá lækni.
![Esomeprazol Actavis 28stk 20mg [sþ-tfl]](https://lyfjaval.s3.eu-central-1.amazonaws.com/2024/04/568745.jpg)