Nordaid Sleep Aid 1mg Melatonin
10009154
Product information
Short description
Ráðlagður dagskammtur: Einn úði undir tungu eða innan á kinnina fyrir svefn. Hristist fyrir notkun.
Lagerstaða
Description
Melatónín dregur úr tíma til að sofna. Gagnleg áhrif koma fram þegar 1 mg. af melatóníni er neytt rétt fyrir svefn. Sleep Aid er fyrir þá einstaklinga sem eiga í vandræðum með að festa svefn og eða þá sem oft vakna yfir nóttina eða eru með svefntruflanir.
Tímabundið svefnleysi getur verið af völdum t.d álags, sjúkdóma, verkja, kvíða, breytingaskeiðs, vegna vaktavinnu, ferðalaga og eða breytinga á lífsmunstri. Munnúðinn nýtist líkamanum allt að 50% betur en hefðbundnar töflur og hylki, þar sem innihaldið frásogast beint í gegnum slímhúð munnhols og út í blóðrásina. Bragðgóður munnúði sem frásogast og nýtist hratt og vel.
Rannsóknir hafa sýnt að munnúði er það form með bestu upptöku í mannslíkamanum.
- Inniheldur hvorki sykur né gervisykur
- Mikil gæði og fyrsta flokks sérvalið hráefni
- Nútíma loftlausar umbúðir sem tryggja ferskleika og endingu
- GMP vottað
Þegar munnúðinn er notaður í fyrsta skipti er gott að ýta nokkrum sinnum á úðahausinn til að fá vökvann upp í rörið. Hristið glasið fyrir notkun. Úðið undir tunguna eða innan á kinnina. Munið að setja hettuna á úðahausinn og geymið flöskuna þannig hún standi lóðrétt.
Ef munnúðinn er ekki notaður í langan tíma, þá getur hann stíflast. Ef það gerist þá þarf að hreinsa úðahausinn með heitu vatni.
Geymist við stofuhita og ekki í sólarljósi.
