Corsodyl Munnholshlaup 10mg/g
10000694
Product information
Short description
Corsodyl er notað til sótthreinsunar fyrir og eftir munn- og tannaðgerðir. Tímabundið við munnbólgu
af völdum gervitanna. Corsodyl er einnig notað til tannhreinsunar þegar erfitt getur verið að koma
henni við t.d. vegna tímabundins sjúkdóms, slyss, mikilla tannskemmda, tannholdsbólgu og tannloss.
Lagerstaða
Description
Corsodyl 10 mg/g munnholshlaup. Inniheldur klórhexidínglúkónat. Til sótthreinsunar fyrir og eftir munn- og tannaðgerðir. Tímabundin meðferð við munnbólgu af völdum gervitanna. Tímabundin meðferð til varnar bakteríum og tannsteini vegna tímabundinna sjúkdóma, slyss, mikillar tannsteinsmyndunar, tannholdsbólgu og tannslíðursbólgu. Lesið leiðbeiningar á pakkningu vandlega fyrir notkun.
Ekki skal nota Corsodyl fyrir börn yngri en 12 ára nema læknir eða tannlæknir ráðleggi það.
Corsodyl er notað eftir tannburstun með tannkremi en ekki fyrir. Skola skal munninn vandlega eftir tannburstun, annars geta leifar af tannkreminu, t.d. natríumlaurýlsúlfat verkað gegn áhrifum klórhexidínsins.
