Beint í efni
Verslun/Vítamín og bætiefni/
Better you B12 Boost 25ml úði

Better you B12 Boost 25ml úði

16000146

Product information


Short description

B12 Boost er bragðgóður munnúði sem hentar öllum B12 vítamín er gríðarlega mikilvægt og gegnir margvíslegu hlutverki í líkama okkar.

Lagerstaða

Lagerstaða
Glæsibær: Til á lager
Vesturlandsvegur: Fá eintök
Urðarhvarfi: Til á lager
Suðurfell: Fá eintök
Hæðasmári: Fá eintök
Mjódd: Til á lager
Hringbraut: Fá eintök

Auka upplýsingar

Description

B12 vítamín er gríðarlega mikilvægt og gegnir margvíslegu hlutverki í líkama okkar. Það er m.a. nauðsynlegt fyrir skiptingu frumna en rauðu blóðkornin eru í hópi þeirra frumna sem skipta sér oftast og því veldur B12 vítamínskortur lágum blóðgildum í líkamanum

B12 vítamín er nauðsynlegt fyrir nýmyndun tauganna og spilar það því stórt hlutverk í að halda taugakerfinu okkar í lagi sem og heilastarfseminni. Í ljósi þess að B12 skortur tengist oft vandamálum í meltingarvegi er hentugt að innbyrða það í formi munnúða

Upptaka á B12 vítamíni í gegnum slímhúð í munni er örugg og áhrifarík leið til að tryggja líkamanum nægjanlegt magn af B12 vítamíni eða til að verja okkur fyrir B12 vítamín skorti. Hvað veldur B12 vítamín skorti? B12 er það vítamín sem flesta skortir á efri árum og oft er það vegna skorts á efninu „Intrinsic Factor“ sem er mikilvægt prótein, framleitt í maga og hjálpar til við upptöku. Það þýðir að þó svo að við borðum dýraafurðir eða tökum vítamín töflur, verður engin upptaka á B12 vítamíni og við lendum í skorti. Óhófleg neysla áfengis, kaffi, kóladrykkja og nikótíns, notkun ýmissa lyfja, m.a. sýrubindandi lyfja og mikil eða langvarandi notkun sýklalyfja er meðal þess sem getur valdið okkur skorti. Einkenni B12 vítamín skorts geta verið eftirfarandi: - Orkuleysi og slen - Þreyta, ör hjartsláttur, andþyngsli og svimi - Nálardofi í hand- og fótleggjum - Þyngdartap - Minnisleysi B12 Boost munnúðinn frá Better You inniheldur methylcobalamin sem er náttúrulegt form þessa vítamíns og einmitt það sem er best fyrir okkur að taka. Úðinn er bragðgóður og tryggir að líkaminn fái allt það B12 vítamín sem hann þarf á afar auðveldan og einfaldan máta. Úðinn inniheldur einnig steinefnið króm sem nýtist öllum og er sérstaklega hjálplegt fólki með efnaskiptavillu og/eða vandamál tengdum blóðsykri, ásamt grænt te sem lengi hefur verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína. B12 Boost er m.a. hentugt fyrir fólk sem: - er síþreytt eða orkulaust - er grænmetisætur eða vegan - er yfir 60 ára - er íþróttafólk eða stundar ákafa hreyfingu - er í annasömu starfi - er barnshafandi eða með barn á brjósti Notkun: 4 úðar á dag fyrir fullorðna, 2 úðar á dag fyrir börn undir 12 ára

B12 boostið gefur 1200 mcg af B12 vítamíni miðað við 4 úða á dag

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Lyfjaval mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum

Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma. Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu

Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til

B12 vítamín er gríðarlega mikilvægt og gegnir margvíslegu hlutverki í líkama okkar.